Það virðist loða við mig þessa dagana að lofa nuddi þegar ég fer á djammið! Fór á miðvikudaginn að fagna danadrottningunni sem nú er á landinu og gerði ég það með Tótu, Hauki og danadrottningunni sjálfri henni Hjördísi. Það er skemmst frá því að segja að þetta hafi verið ágætis djamm, djamm hittingssins ef svo má segja! Þetta kvöld hitti ég eftirfarandi: Kela, Eika, Hlín og aukahlutinn hennar, Hildi, Þórunni, Eyrúnu, Bryndísi, Tvíbbann minn, aukahlutinn hennar og Gullu, Jenna og Tinnu bekkjarsystkini mín. Auk þessara hitti ég fullt af celebritís en þó ekki Sugarbabes auk þess sem vinur minn bjór var á staðnum! Á þessum lista eru einungis fimm manneskjur sem ég lofaði ekki að nudda-Eva tvíbbinn minn og Gulla sem ég var þegar búinn að lofa að nudda, Jenna og Tinnu hef ég nuddað nú þegar enda með mér í bekk og svo aukahlutirnir tveir en þeir þurfa örugglega ekkert nudd hvort sem er! Ef ég hefði hitt Sugarbabes hefði ég líka lofað þeim nuddi!
Elín Marta bekkjarsystir mín er byrjuð að blogga og er bloggið hennar hér og fær það hér með tengil frá mér inn á tenglalistann!
"Svo vill ég benda á að Ari fór á djammið í gær og skildi mig eftir heima! Þvílíkt og annað eins, ég mun án efa hefna mín í kvöld og vekjann svo þegar ég kem heim til hans nær dauða en lífi með Hlöllann minn í pilsinu, útæld og spennandi. Já Ari minn ég mun hefna mín! Mwuahahahah, mwuahahah, mwuahahaha..." Tekið af esterbester.blogspot.com án leyfis!
Hún hló, hún hló, hún skelliskellihló. Svona er texti í gömlu íslensku þjóðlagi...en athuga ber að það var áður en hún dó og ældi útum allt og var þunnari en allt sem þunnt er í gær! MWUHAHAHAHA! Ég ætla ekki að hefna mín á þér krúttið mitt!
Fór á föstudaginn á djamm dauðans, bauð barþjónustustúlkunni uppá nudd (nuddaði hana ekki!), fór á bakvið á Hverfis án leyfis (að sækja handklæði notabene), sprengdi vörina á bekkjarbróður mínum...reyndar mjööög óvart. Sem sagt ég var í góðum fíling!
Daginn eftir vaknaði ég klukkan níu og fór með afa austur í sumarbústað og var til fimm um daginn. Það var ansi hresst því afi var í fótaaðgerð og gat lítið hreyft sig þannig að ég var aðeins að sendast fyrir hann en eftir klukkan fimm var minn þynnkutími kominn og var ég þunnur frá 17:27 til um það bil 18:14, gott mál!
Í gær fékk ég í heimsókn til mín tvo kumpána úr hinni svakalegu mormónareglu. Þeir hétu Kane og Abel eða eitthvað slíkt. Þegar ég kom til dyra var það fyrsta sem þeir spurðu mig hvort foreldrar mínir væru ekki heima...mér finnst óþolandi þegar einhver sem er á svipuðum aldri og maður sjálfur spyr mann slíkra spurninga! Ég sagði að þau væru ekki heima og þá var ráðist á þann sem minna má sín með spurningum um lífið og tilveruna og Jesú krist...ég segi sá sem minna má sín vegna þess að ég var í engu ástandi til að rökræða um Jesú krist óundirbúinn og þegar ég var að horfa á sjónvarpið og nýbúinn að troða í mig kínamat úr fermingu systur minnar stuttu áður! Svo vissi ég ekki fyrr en ég hafði tekið við hjá þeim bók sem kallast mormónabók sem fjallar um hvernig Jesús birtist ameríkönum með loforði um að lesa í henni fyrir fimmtudaginn. Ég gæti svo svarið það að ég gat ekki komið þessu liði út fyrir þröskuldinn, það var bara ekki hægt. Í fyrsta lagi töluðu þeir svo bjagaða íslensku að ég varð alltaf að segja já þegar ég átti að tala og í öðru lagi þá skildu þeir jáið mitt varla. Svo virtust þeir ekki skilja sjónarmið mitt þess efnis að kannski væri sniðugra fyrir mig að lesa biblíuna fyrst áður en ég færi að lesa einhverja mormónabók.
En allavega, sölutrixið virkaði á mig, ég fór upp og gluggaði í það sem ég átti að lesa! Þetta snýst um það að einhver John Adams eða Smith eða eitthvað á að hafa fengið vitrun eða sýn árið 1838 frá Jesú og hann á að hafa skrifað fyrir hann á einhverjar töflur og skrifað einverjar bækur fyrir hann sem trú þeirra byggist á. Því miður fann ég engin boðorð en gaman hefði verið að vita hvers vegna sá sem ekki er mormóni er dæmdur til að komast ekki til himna. Kannski svipaðar forsendur og krossinn hefur til að dæma allt og alla, jafnvel þó maður eigi ekki að dæma aðra menn...fyrir utan Guð sjálfan kannski.
Því miður verð ég ekki heima á fimmtudaginn eins og ég hafði lofað öldrungi Kane og öldrungi Abel þar sem ég er að fara á aðalfund fnís, en hugsanlega skrifa ég þeim bréf þess efnis að ég hafi ekki áhuga á trú sumra bandaríkjamanna...sérstaklega ekki þegar reynt er að seljamér hana í gegnum hurðarlúguna!
Komiði sæl. Í gær fór ég á úrslitakeppni morfís í háskólabíó. Þar áttust við VÍ og MH í æsispennandi keppni þar sem málefnið var 'er maðurinn heimskur?'. Það er skemmst frá því að segja að ég Ester og Eiríkur félagi minn sátum vitlausu meginn við helminginn, þ.e. versló meginn-heimskulegt ekki satt? Mér fannst svolítið eins og í gær hefðu hlutskipti liðanna svolítið snúist við frá því ég var í MH og MH ræðuliðið var þekkt fyrir sprell og vitleysu. Í gær voru ræður MH liðsins málefnalegar en Versló afturámóti var með sprell og slangur í sínum ræðum. Mér fannst tvær ræður standa uppúr, fyrsta ræða verslunarskólans og seinni ræða Halldórs Halldórssonar í MH liðinu sem eflaust hefur haft afa sinn Halldór Laxness í anda við hlið sér á sviðinu.
Úrslit þessarar keppni voru umdeild, Versló vann með 1544 stigum gegn 1543 stigum eða einu stigi sem er ótrúlega lítill munur. Þar að auki dæmdu tveir af þremur dómurunum MH sigurinn, en svona er þetta betra liðið vinnur ekki alltaf. Umfjöllun um keppnina má eflaust finna á síðunni morfis.tk.
Þið getið rétt ímyndað ykkur hversu vandræðalegt það var að sitja vitlausu megin í stúkunni þegar úrslitin bárust þó það hefði verið enn verra ef það hefði farið á hinn veginn...við hefðum eflaust ekki sloppið heil frá því!
Pulsur komu í umræðuna á síðunni hennar Hjördísar danadrottningar. Þar er því haldið fram að ég hafi unnið einhverja pulsuátskeppni með skitnar fimm pulsur! Þetta var aldeilis ekki nein keppni! Hefði þetta verið keppni hefði ég torgað í það minnsta tíu pulsum ef ekki fjörutíu og fimm pulsum sem væri mjög gaman. Ég á það nefnilega skilt með heimsmeistaranum í pulsuáti að vera frekar í mjórri kantinum heldur en hitt. Umræddur heimsmeistari er lítill og mjór Japani sem étur brauðin fyrst og pulsurnar svo og ég man ekki hversu margar pulsur hann getur étið í einum rykk, en það er með ólíkindum magnið sem hann torgar! Því lýsi ég yfir frati á þennan fúla Japana sem gefur sig út fyrir að vera maður. Þetta er vanvirðing við pulsugerðalistina að éta brauðið sér og pulsurnar sér, að sjálfsögðu verður maður að éta þær með öllu sem þær eiga að vera með hverju sinni! Á Akureyri étur maður þær með rauðkáli og majónesi og öllu tilheyrandi og í Frakklandi étur maður þær í vasa. Maður fer bara á staðinn og segir ég ætla að fá pulsu með ÖLLU, pulsa avec alles(Hef aldrei lært frönsku en gaman væri að vita hvort þetta gæti skilað e-u), 'one hotdog please' eða 'jeg vil have en pulse' eða 'eine berliner bitte' og það sem þið fáið í hendurnar því torgiði...pulsur eru besti matur í heimi mmmMMM!
Ætli maður verði ekki bara að gera svo vel og brjóta þessa ritstíflu þetta gengur ekki lengur! Síðustu daga hefur ekkert merkilegt gerst í mínu lífi og því hef ég ekkert til að segja frá hér né annars staðar. Þið ættuð bara að prófa að sitja á hliðina á mér...samtalið gæti verið svona:
Ari: Hæ!
E-r: Hæ!
Ari: Eitthvað að frétta?
E-r: Nei, en af þér?
Ari: Nei...
E-r: ...
Ari: ...
Sumsé vandræðalegt...
En eitt er þó í gangi sem ég reyndar held bara fyrir mig...eða allavega fram að þessu. Þetta er nefnilega svoldið shallow en nú getið þið dæmt um það. Ég er í veðmáli við enga aðra en mína heittelskuðu hana Esteri. Veðmálið snýst um það að ég á að ná af méreinu prósenti af fitu á einni viku. Byrjaði í þrettán komma eitt prósent og er búinn að vera að æfa stíft síðan og drekka mikið vatn. Að öðru leyti lifi ég bara eins og venjulega, drekk mikið kók borða mikið súkkulaði og svo framvegis. Rúsínan í pylsuendann er sú að í verðlaun fyrir sigur í þessu ágæta veðmáli er ekkert annað en hamborgaramáltíð! Þannig að ég verð fljótur að ná mér aftur í mitt gamla form eftir átakið.